Erlent

Tugir fórust í skjálftum

Mynd/Getty Images - úr safni

Tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir eyjuna Súmötru í Indónesíu í morgun og fórust minnst 31 í þeim. Mestur skaðinn varð í Panang-héraði. Fyrri skjálftinn var 6.3 á richter og sá síðari 6,0. Hús voru jöfnuð við jörðu og tugir særðust í skjálftunum. Upptök skjálftanna voru undir fastalandi, um 400 kílómetra frá Singapúr. Öngþveiti hefur verið á spítulum í Panang-héraði og hefur læknalið ekki undan að sinna slösuðum. Mikil skelfing greip um sig þegar skjálftanna varð vart enda íbúum enn í fersku minni hamfarirnar sem uðru á annan dag jóla fyrir rúmum tveimur árum. Þá fórust yfir 130 þúsund í Indónesíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×