Wembley-vitleysan fór alveg með Evrópuævintýri Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2017 10:30
Tottenham, sem byrjaði tímabilið í Meistaradeildinni, datt í gær út úr 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Þetta hefur ekki verið glæsilegur Evrópuvetur hjá Spurs. Uppskeran er aðeins tveir sigrar í átta Evrópuleikjum á tímabilinu og Tottenham-menn geta núna farið að einbeita sér að ensku úrvalsdeildinni og enska bikarnum þar sem þær mæta Millwall í átta liða úrslitunum. Það er allavega ljóst að eini leikurinn sem Tottenham spilar aftur á Wembley verður bikarúrslitaleikurinn. Þetta Wembley-ævintýri Tottenham í Evrópukeppninni hefur engan veginn gengið upp og margir eru sannfærðir um að liðið væri enn með í Meistaradeildinni ef liðið hefði bara spilað sína heimaleiki á White Hart Lane. Tölfræðin talar líka sínu máli. Tottenham hefur nú fengið fleiri mörk á sig í fjórum Evrópuleikjum á Wembley (6 mörk) en í tólf deildarleikum á White Hart Lane (5 mörk). Tottenham vann aðeins einn af þessum fjórum leikjum á Wembley og sá sigur kom í lokaleik riðlakeppni Meistaradeildarinnar á móti CSKA Moskvu þegar liðið átti ekki lengur möguleika á því að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar. Tottenham hefur unnið báða heimaleiki sína í enska bikarnum og hefur náð í 32 af 36 stigum í boði á White Hart Lane í ensku úrvalsdeildinni þar sem markatala liðsins í tólf leikjum er 26-5. Sú ákvörðun að fara með Evrópuleikina á stærri völl til þess að geta selt fleiri miða hafði því mikil áhrif á þróun tímabilsins hjá Tottenham. Þeir fengu tvöfalt fleiri áhorfendur á Evrópuleikina en Evrópuleikirnir urðu kannski helmingi færri vegna slakrar frammistöðu á „heimavellinum“ sem var enginn heimavöllur fyrir liðsmenn Tottenham.Heimaleikir Tottenham í Evrópukeppninni á Wembley 2-1 tap á móti Mónakó 1-0 tap á móti Bayer Leverkusen 3-1 sigur á CSKA Moskvu 2-2 jafntefli við Gent
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Sjá meira