Erlent

Ortega heldur forystunni í Níkaragva

Daníel Ortega er sigurviss í Níkaragva
Daníel Ortega er sigurviss í Níkaragva MYND/AP

Daníel Ortega, fyrrverandi uppreisnarleiðtogi Sandínista í Níkaragva, heldur forystunni þegar búið er að telja 15% atkvæða í forsetakosningunum í landinu. Hann hefur hlotið 40% atkvæða en helsti keppinautur hans, Eduardo Montealegre hefur 33% atkvæða. Ef þetta hlutfall helst, þá verður ekki önnur umferð í forsetakosningunum.

Ortega hefur reynt að fullvissa þjóðina um að hann sé ekki sá sami og gerði upptækar eignir hinna efnameiri eftir að hafa rænt völdum 1979. Hann var við völd þar til uppreisnarmenn steiptu honum af stóli, með dyggum stuðningi Bandaríkjamanna, árið 1990. Síðan þá hefur hann boðið fram í öllum forsetakosningum en án árangurs.

Hugo Chavez, forseti Venesúela og svarinn andstæðingur Bandaríkjamanna, styður "bróður sinn" Ortega með ráðum og dáð en að sama skapi eru Bandaríkjamenn uggandi og vilja helst ekki sjá hann komast aftur til valda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×