Erlent

Tveggja vikna umhverfisráðstefna S.þ. í Nairobi

Útblástur frá bílum og öðrum farartækjum er ein aðalorsök hlýnandi loftslags að mati margra vísindamanna.
Útblástur frá bílum og öðrum farartækjum er ein aðalorsök hlýnandi loftslags að mati margra vísindamanna. MYND/Einar Ólason
Rúmlega 6.000 manns eru komnir til Nairobi í Kenýa til að taka þátt í tveggja vikna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Margir vonast til þess að sjá þess einhver merki að Bandaríkjamenn hyggist taka ríkara tillit til Kyoto-bókunarinnar í umhverfisstefnu sinni. Fáir búast þó við því meðan Bush er við völd.

Á ráðstefnunni verður sendinefndunum birtar nýjustu niðurstöður vísindamanna um hlýnandi heim. Skýrsla þeirra verður birt opinberlega á næsta ári í ítarlegri úttekt Sameinuðu þjóðanna um lofstlagsmál, sem virtustu loftslagssérfræðingar í heimi hafa unnið. Bandarískir vísindamenn tilkynntu í september að hitastig í heiminum hafi ekki verið hærra í að minnsta kosti 12.000 ár. Fleiri svartar skýrslur hafa birst undanfarið og verða niðurstöðurnar allar teknar saman í úttekt Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×