Hæstiréttur braut á fjölfatlaðri stúlku 6. júlí 2007 02:30 Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir dæmdu málið í Hæstarétti.
Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða níu ára stúlku rúmar sex milljónir króna í bætur auk einnar og hálfrar milljónar í málskostnað fyrir mannréttindabrot. Dómnum þótti ljóst að stúlkan hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð þegar Hæstiréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms í læknamistakamáli gegn ríkinu. Stúlkan veiktist strax eftir fæðingu árið 1998 og var metin með hundrað prósent örorku. Árið 2002 komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að örorku stúlkunnar mætti rekja til mistaka starfsfólks Landspítalans og dæmdi foreldrum hennar tæpar þrjátíu milljónir í bætur. Hæstiréttur sneri þessum dómi við árið 2004 og sýknaði ríkið. Samkvæmt úrskurði mannréttindadómstólsins var brotið á stúlkunni þegar Hæstiréttur leitaði upp á sitt einsdæmi til Læknaráðs stuttu áður en málflutningur hófst. Byggði Hæstiréttur úrskurð sinn að miklu leyti á áliti Læknaráðs, þar sem meðal annars sátu fjórir starfsmenn Landspítalans. Með því að byggja úrskurð sinn á áliti starfsmanna varnaraðila braut Hæstiréttur sjöttu grein mannréttindasáttmálans, sem kveður meðal annars á um rétt manna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óvilhöllum dómstóli. „Þetta er mikill áfellisdómur yfir Hæstarétti,“ segir Eggert Ísólfsson, faðir stúlkunnar. „Það er varla hægt að hugsa sér að hann geti lagst lægra en að brjóta gróflega á mannréttindum á fjölfatlaðs barns.“ Hann segir niðurstöðuna sigur fyrir fjölskylduna, þó bæturnar séu vissulega lægri en þær sem héraðsdómur dæmdi stúlkunni árið 2002. Heimir Örn Herbertsson, lögmaður stúlkunnar, segir sjálfsagt að í kjölfar dómsins verði skoðað hvort hún fái ekki frekari úrlausn sinna mála. Hann hyggist leita til íslenskra stjórnvalda eftir því að hlutur hennar verði réttur. „Það eru einnig heimildir í íslenskum lögum fyrir því að leita eftir endurupptöku mála fyrir dómstólum, og ég tel sjálfsagt að skoða það.“ Ekki náðist í Gunnlaug Claessen, forseta Hæstaréttar og sitjandi dómara í máli stúlkunnar, við vinnslu fréttarinnar. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust þau svör að ekki verði rætt um dóminn fyrr en hann hefur verið þýddur.
Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Erlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Fleiri fréttir Þrír vistaðir í fangaklefa vegna gruns um sölu fíkniefna Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent