Innlent

Hæstiréttur braut á fjölfatlaðri stúlku

Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir dæmdu málið í Hæstarétti.
Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir dæmdu málið í Hæstarétti.

Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða níu ára stúlku rúmar sex milljónir króna í bætur auk einnar og hálfrar milljónar í málskostnað fyrir mannréttindabrot. Dómnum þótti ljóst að stúlkan hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð þegar Hæstiréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms í læknamistakamáli gegn ríkinu.



Stúlkan veiktist strax eftir fæðingu árið 1998 og var metin með hundrað prósent örorku. Árið 2002 komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að örorku stúlkunnar mætti rekja til mistaka starfsfólks Landspítalans og dæmdi foreldrum hennar tæpar þrjátíu milljónir í bætur. Hæstiréttur sneri þessum dómi við árið 2004 og sýknaði ríkið.



Samkvæmt úrskurði mannréttindadómstólsins var brotið á stúlkunni þegar Hæstiréttur leitaði upp á sitt einsdæmi til Læknaráðs stuttu áður en málflutningur hófst. Byggði Hæstiréttur úrskurð sinn að miklu leyti á áliti Læknaráðs, þar sem meðal annars sátu fjórir starfsmenn Landspítalans.

Með því að byggja úrskurð sinn á áliti starfsmanna varnaraðila braut Hæstiréttur sjöttu grein mannréttindasáttmálans, sem kveður meðal annars á um rétt manna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óvilhöllum dómstóli.



„Þetta er mikill áfellisdómur yfir Hæstarétti,“ segir Eggert Ísólfsson, faðir stúlkunnar. „Það er varla hægt að hugsa sér að hann geti lagst lægra en að brjóta gróflega á mannréttindum á fjölfatlaðs barns.“ Hann segir niðurstöðuna sigur fyrir fjölskylduna, þó bæturnar séu vissulega lægri en þær sem héraðsdómur dæmdi stúlkunni árið 2002.



Heimir Örn Herbertsson, lögmaður stúlkunnar, segir sjálfsagt að í kjölfar dómsins verði skoðað hvort hún fái ekki frekari úrlausn sinna mála. Hann hyggist leita til íslenskra stjórnvalda eftir því að hlutur hennar verði réttur. „Það eru einnig heimildir í íslenskum lögum fyrir því að leita eftir endurupptöku mála fyrir dómstólum, og ég tel sjálfsagt að skoða það.“

Ekki náðist í Gunnlaug Claessen, forseta Hæstaréttar og sitjandi dómara í máli stúlkunnar, við vinnslu fréttarinnar. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust þau svör að ekki verði rætt um dóminn fyrr en hann hefur verið þýddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×