Yahoo kynnir leitarvél handa auglýsendum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. febrúar 2009 08:07
Netveitan Yahoo verður æ harðsnúnari í baráttunni um að tryggja auglýsendum aðgang að nákvæmlega rétta markhópnum á Netinu. Nú duga engir silkihanskar lengur þegar neytendur, auglýsingar og markhóparýni eru annars vegar. Þetta vita auglýsingasálfræðingar Yahoo mætavel og leggja sig í framkróka við að hjálpa kaupendum auglýsenda að ná augum og eyrum nákvæmlega þess hóps sem þeir ætla að höfða til. Auglýsingar kosta peninga, neysluvörur kosta peninga og almenningur á litla eða enga peninga. Michael Walrath, aðstoðarframkvæmdastjóri auglýsingasölu Yahoo, segir auglýsendur horfa í aurinn sem aldrei fyrr og nú verði hver einasta króna að skila sínu. Í byrjun mars kynnir Yahoo eins konar auglýsingaleitarvél sem mun gera auglýsendum kleift að greina markhópa sína niður í smæstu breytur, hvort sem þar er um að ræða kyn, aldur, háralit eða hvenær fólk er við tölvuskjáinn. Þannig getur auglýsandinn klæðskerasniðið auglýsingu eða auglýsingaherferð niður í smásmugulegustu atriði og vonandi uppskorið í staðinn hina eftirsóttu athygli neytandans og í framhaldinu jafnvel krónurnar í vasa hans. Markaðurinn er hreinlega alls staðar enda hafa spurnir af þessari nýju þjónustu Yahoo hækkað hlutabréf fyrirtækisins um 3,4 prósent.
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Sjá meira