Teygjur koma hvorki í veg fyrir harðsperrur né meiðsl BBI skrifar 26. júlí 2012 17:04 Mynd/Getty
Það er gjarna sagt að teygjur minnki líkur á harðsperrum og komi í veg fyrir meiðsl. Börnum er kennt að teygja eftir skólaíþróttir og fótboltalið sitja saman í hring í asnalegum stellingum eftir leiki til að passa upp á líkamann. Fréttamenn Breska Ríkisútvarpsins BBC veltu upp spurningunni hvort teygjur hafi einhver raunveruleg áhrif. Annars vegar var skoðað hvort teygjur hefðu áhrif á harðsperrur. Ekki hafa margar rannsóknir verið gerðar. Þær sem þó hafa verið gerðar benda eindregið til þess að teygjur hafi hverfandi áhrif í þeim efnum. Stærsta rannsóknin sem gerð var benti til þess að áhrifin væru þau mjög lítil, 32% þeirra sem ekki teygðu eftir æfingu fengu harðsperrur en 24% hinna. Eldri kenningar um að teygjur skiptu öllu byggðu á gömlum misskilningi á því hvernig harðsperrur myndast. Hins vegar var skoðað hvort teygjur kæmu í veg fyrir meiðsl. Rannsóknir bentu til þess að teygjur skiptu hreinlega engu máli. Það er því ekki margt sem hvetur fólk sérstaklega til að teygja eftir æfingar. Aðspurður sagði Rob Herbert, sem stóð að einni af ofangreindum rannsóknum, að þeir sem hefðu unun af því að teygja mættu gjarna halda því áfram, það hefði alla vega ekki slæm áhrif. Hinir væru þó ekki verr settir þó þeir slepptu teygjuhringnum eftir æfingar. Frétt BBC var birt með þeim fyrirvara að ekki ætti að líta á hana sem heilagan sannleik og jafnaðist ekki á við ráðleggingar frá lækni.
Mest lesið „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Innlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Erlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Sjá meira