Grayson, stjóri Preston: Þetta var ekki dýfa hjá Rooney | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2015 08:00
Wayne Rooney fiskaði umdeilt víti í bikarleiknum á móti Preston í gærkvöldi en með því að skora sjálfur úr vítaspyrnunni þá innsiglaði hann 3-1 sigur Manchester United og sæti í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Það leit út fyrir að Thorsten Stuckmann, markvörður Preston, hafi komið afar lítið við Wayne Rooney ef þá hann kom eitthvað við hann. Simon Grayson, knattspyrnustjóri Preston, reyndi þó ekki að saka Rooney um leikaraskap eftir leikinn. „Ég er ekki að segja að þetta hafi ekki verið vítaspyrna. Ég er að segja að það var engin snerting," sagði Simon Grayson við BBC eftir leikinn. „Þetta var ekki dýfa. Rooney reynir bara að koma sér undan," bætti Grayson við. Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, var einnig á leiknum og hann var sammála Grayson um að þetta hafi ekki verið dýfa. „Ég held að enginn okkar hefði ekki dæmt víti á þetta ef við hefðum ekki getað séð þetta aftur í endursýningu. Markvörðurinn kom með báðar fætur í hann og Rooney lék boltanum framhjá honum," sagði Roy Hodgson. Margir hafa sakað Rooney um leikaraskap enda er erfitt að sjá snertinguna sem átti að hafa fellt enska landsliðsframherjann. Hér fyrir ofan er hægt að sjá Wayne Rooney fiska vítaspyrnuna og dæmi nú hver fyrir sig.
Enski boltinn Mest lesið Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Lækkaði launin til að upplifa drauminn Enski boltinn „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn