Erlent

Um 200 manns fórust í flugslysi

Talið er að um 200 manns hafi farist í gærkvöld þegar farþegaflugvél TAM flugfélagsins hafnaði á olíutanki á Congonhas flugvellinum, sem er inni í borginni Sao Paulo í Brasilíu. Hundrað sjötíu og sex voru um borð í vélinni. Auk þeirra fórst fjöldi fólks sem var í nálægð við flugbrautina.

Flugvélin, sem var af gerðinni Airbus 320, var á leið til Sao Paulo frá Porto Alegre í suðurhluta landsins. Slysið átti sér stað í lendingunni en talið er að vélin hafi runnið til í bleytu á flugbrautinni. Hún rann út fyrir enda brautarinnar og hafnaði þar á birgðargeymslu fyrir vörur og eldsneyti. Starfsmaður TAM flugfélagsins sagðist hafa heyrt sprengingu við áreksturinn og síðan hafi eldur gosið upp í flugvélinni. Talið er að hitinn inni í henni hafi farið yfir þúsund gráður og því lítil von um að nokkur farþegi hafi komist af.

Veður var slæmt í Sao Paulo í gær og flugmenn höfðu miklar áhyggjur af öryggi flugvallarins vegna mikilla rigninga. Á mánudaginn rann önnur minni flugvél á á sömu flugbraut við svipaðar aðstæður. Í febrúar síðastliðnum var umferð stórra farþegaflugvéla bönnuð á þessari flugbraut eftir að flugmenn höfðu kvartað yfir því að bleyta á flugbrautinni kæmi í veg fyrir að þeir gætu hemlað eðlilega.

Lula da Silva, forseti landsins, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×