Erlent

Fimmtán manns létust í Islamabad

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Fimmtán manns létust og að minnsta kosti 40 særðust þegar sjálfsmorðssprengja sprakk í Íslamabad í Pakistan í gærkvöld. Talið er árásinni hafi verið beint að stuðningsmönnum, Iftikhar Chaudhry fyrrum dómsmálaráðherra landins. Árásin átti sér stað á fjöldafundi lögfræðinga en Chaudhry átti að flytja ræðu á fundinum. Fjöldi stuðningsmanna hans voru samankomnir á fundinum þegar sprengjan sprakk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×