Bilanahrina í kjarnorkuveri 18. júlí 2007 00:15 Um 13.000 fórnarlömb jarðskjálftans dvöldu í neyðarskýlum í gær. Um 50 þúsund heimili eru án vatns, 35 þúsund heimili án gass og 27 þúsund heimili án rafmagns vegna jarðskjálftans. fréttablaðið/AP
Kjarnorkuúrgangur sem helltist niður, sprungin rör, eldur og vatnsleki eru dæmi um nokkur af þeim fimmtíu vandamálum sem uppgötvuðust í stærsta kjarnorkuveri heims, Kashiwazaki-Kariwa, eftir að stór jarðskjálfti reið yfir í norðurhluta Japans á mánudaginn. Greint var frá vandamálunum í gær sem voru öll minni háttar að sögn talsmanns fyrirtækisins sem rekur kjarnorkuverið, Tokyo Electric Power Co. (TEPCO). Jarðskjálftinn mældist 6,6 stig á Richter og upptök hans voru við strönd Niigata sem er 260 kílómetra norðvestur af Tókýó. Níu létust og 47 slösuðust alvarlega. Allir hinir látnu voru á áttræðis- eða níræðisaldri. Hinn mikli fjöldi vandamála og það hversu seint TEPCO greindi frá þeim hefur vakið ugg um að öryggi í kjarnorkuverum í Japan sé ábótavant, bæði vegna fjölda slysa, sem sum hefur verið reynt að hylma yfir, og að þau séu viðkvæm fyrir jarðskjálftum. Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, gagnrýndi TEPCO harðlega í fjölmiðlum í gær. „Þeir gáfu of seint út aðvörun. Ég hef sent strangar leiðbeiningar um að aðvaranir í svona tilvikum þurfi að gefa út skjótt og af alvöru.“ Abe sagði að þeir sem bæru ábyrgð ættu að iðrast.
Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Innlent Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Fleiri fréttir Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Sjá meira