Erlent

Bilanahrina í kjarnorkuveri

Um 13.000 fórnarlömb jarðskjálftans dvöldu í neyðarskýlum í gær. Um 50 þúsund heimili eru án vatns, 35 þúsund heimili án gass og 27 þúsund heimili án rafmagns vegna jarðskjálftans.
Um 13.000 fórnarlömb jarðskjálftans dvöldu í neyðarskýlum í gær. Um 50 þúsund heimili eru án vatns, 35 þúsund heimili án gass og 27 þúsund heimili án rafmagns vegna jarðskjálftans. fréttablaðið/AP

Kjarnorkuúrgangur sem helltist niður, sprungin rör, eldur og vatnsleki eru dæmi um nokkur af þeim fimmtíu vandamálum sem uppgötvuðust í stærsta kjarnorkuveri heims, Kashiwazaki-Kariwa, eftir að stór jarðskjálfti reið yfir í norðurhluta Japans á mánudaginn.



Greint var frá vandamálunum í gær sem voru öll minni háttar að sögn talsmanns fyrirtækisins sem rekur kjarnorkuverið, Tokyo Electric Power Co. (TEPCO).



Jarðskjálftinn mældist 6,6 stig á Richter og upptök hans voru við strönd Niigata sem er 260 kílómetra norðvestur af Tókýó. Níu létust og 47 slösuðust alvarlega. Allir hinir látnu voru á áttræðis- eða níræðisaldri.

Hinn mikli fjöldi vandamála og það hversu seint TEPCO greindi frá þeim hefur vakið ugg um að öryggi í kjarnorkuverum í Japan sé ábótavant, bæði vegna fjölda slysa, sem sum hefur verið reynt að hylma yfir, og að þau séu viðkvæm fyrir jarðskjálftum.



Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, gagnrýndi TEPCO harðlega í fjölmiðlum í gær. „Þeir gáfu of seint út aðvörun. Ég hef sent strangar leiðbeiningar um að aðvaranir í svona tilvikum þurfi að gefa út skjótt og af alvöru.“ Abe sagði að þeir sem bæru ábyrgð ættu að iðrast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×