Erlent

Heilbrigðisstarfsmenn í Líbíu dæmdir í lífstíðarfangelsi

Líbísk yfirvöld breyttu í gærkvöld dauðadómi, yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og palestínskum lækni sem voru fundin sek um að smita börn af HIV veirunni, í lífstíðarfangelsi.

Dómurinn var mildaður eftir að ættingjar barnanna féllu frá kröfu um dauðarefsingu þegar að þeim voru boðnar 60 milljónir íslenskra króna í miskabætur fyrir hvert barn. 438 börn smituðust og hafa 57 þegar látist.

Talsmaður fjölskyldna barnanna segir að fjölskyldur þeirra hafi þegar fengið bæturnar. Peningarnir koma úr sameiginlegum sjóði sem líbísk stjórnvöld, Evrópusambandið og aðrar stofnanir fjármagna.

Líbía og Búlgaría hafa gert með sér framsalssamning og búlgörsk stjórnvöld fara fram á að fólkið afpláni í Búlgaríu. Hin dæmdu segjast vera saklaus. Þau fullyrða að þau hafi verið neydd með pyntingum til þess að játa á sig sök. Síðustu helgi óskuðu þau eftir náðun og við sama tækifæri lýstu þau því yfir að þau myndu ekki fara í mál við líbísk stjórnvöld vegna áranna sem þau hafa þegar eytt í fangelsi. Atburðirnir áttu sér stað árið 1998 og fólkið hefur setið í fangelsi síðan árið 1999.

Óháðir vísindamenn sem skoðuðu mál þeirra segja líklegt að börnin hafi smitast áður en hin dæmdu hófu störf á spítalanum sem börnin voru á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×