Erlent

Vill gera alla að líffæragjöfum

Allir Bretar verða líffæragjafar nema þeir taki annað fram nái tillaga landlæknis Bretlands, Liams Donaldson, fram að ganga. Donaldson segir alvarlegan skort á líffærum í Bretlandi þar sem að meðaltali einn sjúklingur deyi daglega meðan hann bíður eftir líffæri.



Samkvæmt breskum lögum þarf fólk að hafa gefið samþykki sitt fyrir líffæragjöf eða, hafi það ekki tekið neitt fram, þurfa aðstandendur að gefa samþykki. Donaldson, sem er helsti ráðgjafi breskra stjórnvalda í heilbrigðismálum, telur núgildandi lög letja líffæragjöf.



Spánn, Belgía, Tékkland og Austurríki hafa þegar tekið upp svipaðar reglur og Donaldson leggur til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×