Erlent

Krónan tefur fyrir bensínlækkun hér á landi

MYND/AP

Olíuverð hélt áfram að lækka á heimsmarkaði í gær og er tunnan í Bandaríkjunum komin niður í 54 dollara. Það er lægsta verð í tæp tvö ár og hefur olíuverðið lækkað um 12 prósent frá áramótum.

Krónan hefur hinsvegar lækkað um rösklega þrjú prósent gagnvart dollar frá áramótum, og tefur það fyrir bensínlækkun hér á landi í kjölfar verðlækkunar á heimsmarkaði, því allar olíuvörur eru keyptar inn í dollurum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×