Drakk eigið hland í beinni útsendingu 26. september 2007 10:41 Tzofit Grant fer í súkkulaðibað í beinni útsendingu Mynd/Netið
Breska slúðurpressan hefur nú fundið verðugan arftaka Jose Mourinho. Það er Tzofit Grant - eiginkona Avram Grant, eftirmanns Mourinho hjá Chelsea. Hún er sjónvarpsstjarna í Ísrael og hefur gert hluti í beinni útsendingu sem fáir hafa leikið eftir. Breska pressan hefur alltaf haft gaman af því að fylgja eftir kærustum og eiginkonum knattspyrnumanna og ef marka má lýsingar Daily Mail á Tzofit Grant, virðast blaðamenn á Englandi eiga eftir að hafa nóg að gera við að fylgja henni eftir á næstunni. Tzofit Grant er 43 ára gömul leikkona og er mjög umdeild í heimalandinu. Hún er þannig ýmist álitin kyntákn eða viðbjóður af gagnrýnendum, en ísraelskur sjónvarpsmaður sagði Daily Mail að breska pressan ætti eftir að elska hana. Tzofit var á tíma með morgunþátt í ísraelsku sjónvarpi sem var í meira lagi umdeildur. Þar afrekaði hún það m.a. að fara í súkkulaðibað, baða sig í spagettíi og tómatsósu, klæða sig eins og belju - og að drekka eigið hland úr viskíglasi. Áhorfið á þáttinn var gríðarlegt, en þó var ákveðið að taka þáttinn af morgundagskrá og færa hann yfir á kvöldin. Þáturinn hennar hét fyrst "Mjólkurhristingurinn" en fékk síðar nafnið "Hver er hræddur við Tzofit Grant?" Þættir Grant urðu enn grófari eftir að hún datt inn á kvölddagskrá. Eitt sinn fékk hún masókista í settið hjá sér sem leyfði henni að berja sig - og hún launaði honum með því að leyfa honum að flengja sig. Eitt sinn lenti hún í vandræðum þegar hún setti á svið kraftaverk í þættinum þar sem heilari þóttist hafa læknað fatlaðan mann sem stóð upp og gekk í fyrsta sinn. Hún viðurkenndi síðar að um fölsun hafi verið að ræða þegar hún var beitt þrýstingi. Hún fór líka einu sinni í heimsókn í herbúðir þar sem hún fór í sturtu með dátunum og skoðaði klámblöð. Tzofit hefur líka hlotið herþjálfun og er sögð kunna að taka sundur og setja saman vélbyssur eins og að drekka vatn. Tzofit gerir sér grein fyrir því að hún verður mikið í sviðsljósinu eftir að bóndi hennar tók við Chelsea, en hún ætlar ekki að breyta neinu. "Ég veit hver ég er og allir landar mínar vita hver ég er. Ég ætla ekki eð breyta neinu í fari mínu þó ég fari þangað. Bretar eru líka eins og ég - þeir taka hlutunum eins og þeir eru," sagði hún.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira