Bamford sá um Villa

Bamford og félagar fagna í kvöld en framherjinn var magnaður á Villa Park.
Bamford og félagar fagna í kvöld en framherjinn var magnaður á Villa Park. Laurence Griffiths/Getty Images

Patrick Bamford skoraði öll þrjú mörk Leeds er þeir urðu fyrsta liðið til þess að vinna Aston Villa á þessari leiktíð. Lokatölur 0-3 á Villa Park.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 55. mínútu skoraði Bamford fyrsta markið er hann fylgdi á eftir skoti sem Emiliano Martinez hafði varið út í teiginn.

Einungis tólf mínútum síðar var framherjinn aftur á ferðinni en þá skoraði hann með glæsilegu skoti fyrir utan vítateiginn.

Hann innsiglaði svo þrennuna stundarfjórðungi fyrir leikslok en þá skoraði hann úr þröngu færi í teignum. Frábær afgreiðsla og lokatölur 3-0.

Leeds spilaði frábæran fótbolta í leiknum og átti samtals 26 skot í átt að marki Villa. Þeir splundruðu vörn Villa hvað eftir annað og hefði sigurinn hæglega getað orðið stærri.

Aston Villa er í 2. sætinu með tólf stig en Leeds er sæti neðar með tíu stig. Leeds hefur leikið einum leik fleira.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira