Chelsea sigraði Palace á útivelli en heldur áfram að leka inn mörkum

Ísak Hallmundarson skrifar
Mjög svo mikilvægur sigur fyrir Chelsea í dag. 
Mjög svo mikilvægur sigur fyrir Chelsea í dag.  getty/Sebastian Frej

Chelsea vann afar mikilvægan sigur í Meistaradeildarbaráttunni þegar liðið sigraði Crystal Palace 3-2 á Selhurst Park í dag.

Oliver Giroud kom Chelsea yfir á 6. mínútu eftir sendingu frá Willian og á 27. mínútu gaf Willian aðra stoðsendingu, í þetta sinn á Christian Pulisic sem skoraði og kom Chelsea í 2-0.

Wilfried Zaha skoraði glæsilegt mark á 34. mínútu og minnkaði muninn fyrir Chelsea. 

Á 71. mínútu skoraði Tammy Abraham sitt fyrsta mark síðan í janúar og kom Chelsea 3-1 yfir en það reyndist skammgóður vermir. Christian Benteke minnkaði muninn fyrir Crystal Palace aðeins mínútu síðar og staðan orðin 3-2.

Í uppbótartíma fengu Crystal Palace helling af tækifærum til að jafna og komust hvað næst því í blálokin, þegar varnarmaðurinn Scott Dann átti skalla sem endaði í stönginni. Heppnin var með Chelsea í þetta skiptið og þeir sigldu mikilvægum þremur stigum í hús.

Í augnablikinu eru Chelsea í þriðja sæti með 60 stig, tveimur stigum meira en Leicester og fimm stigum meira en Manchester United, sem eiga bæði leik til góða. Palace siglir lygnan sjó í 14. sæti með 42 stig. 

Annar leikur fór fram á sama tíma þegar Watford sigraði Norwich 2-1 í fallbaráttuslag.

Emiliano Buendia kom Kanarífuglunum yfir á 4. mínútu en Craig Dawson jafnaði fyrir Watford á 10. mínútu. Staðan 1-1 í hálfleik. 

Það var síðan engin annar en Danny Welbeck sem skoraði sigurmark leiksins á 55. mínútu, en þetta var hans fyrsta mark síðan í október 2018. 

Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Watford sem eru núna fjórum stigum fyrir ofan fallsæti í 17. sæti. Sigur hefði verið lífsnauðsynlegur fyrir Norwich til að halda sæti sínu í deildinni en Norwich er í neðsta sæti, tíu stigum á eftir Watford og aðeins 12 stig eftir í pottinum. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira