Besta vininn með í ferðalagið Gæludýr.is 1. júlí 2020 13:21 Skottgrindur eru yfirleitt stillanlegar og henta í flesta bíla.
Ferðalög, útivera, grill, sól, hiti, rigning og stundum rok. Nú er sumarið brostið á og munu flestir eyða því innanlands í ár. Ferðafyrirtæki hafa í auknum mæli opnað fyrir það að Íslendingar geti ferðast með dýrin sín með sér innanlands og því líklega aldrei fleiri hundar á faraldsfæti en í ár. Kong er frábær afþreying fyrir hunda í öllum stærðum. Hægt er að frysta Kong með fyllingu og eiga tilbúið fyrir ferðalagið. Hvað þarf að hafa í huga? Ýmis atriði er gott að hafa í huga áður en lagst er í ferðalög með heimilishundinn en eitt af því fyrsta er að kanna hvort hundurinn sé leyfilegur á áfangastað. Má hafa hund á staðnum? Mjög misjafnt er hvort gististaðir leyfi hunda, hvort það fylgi því aukalegur kostnaður að mæta með hund eða hvort einhverjar takmarkanir séu á stærð hundsins eða kröfur gerðar um umgengni með hundinn. Hversu langt er ferðalagið? Annað sem gott er að hugsa um er ferðamátinn og tímalengd ferðalagsins. Á að ferðast í bíl, með flugi eða ferju eða jafnvel öllu þessu þrennu og hvað er hægt að bjóða dýrinu upp á langt ferðalag án hléa? Hefur hundinn sýnt einkenni bílveiki á fyrri ferðalögum? Hundar þola fæstir að vera marga klukkutíma sleitulaust á ferðalagi svo gott er að gera ráð fyrir að stoppin gætu orðið aðeins fleiri til að rétta úr sér, pissa á nokkrum vel völdum stöðum og ekki síst að fá vatnssopa. Nauðsynlegt er að missa hundinn ekki lausan úr bílnum heldur gæta þess að hann sé í taum í ókunnu umhverfi. Öryggi á ferð Þegar ferðast er með hunda þarf að gæta þess að vel lofti um þá í bílnum og að þeir séu örugglega festir í búri eða í belti og best er ef búið er að æfa hundinn í styttri ferðum áður en lagst er í langferðir. Aldrei má skilja hund eftir í lokuðum bíl í hita og sól. Ráð við bílveiki Bílveiki háir sumum hundum en fyrir suma hefur verið hægt að draga úr einkennum með því að hundurinn hafi gott nag í bílnum t.d. Kong með frosinni fyllingu og fyrir aðra hefur virkað betur að gefa slakandi töflur sem geta einnig dregið úr einkennum bílveiki. Kælivörur - hægt er að fá kælimottur, skálar og bein sem nýtast vel á heitum dögum og einnig í bílinn.Bílbelti má fá bæði sem beisli og sem millistykki úr belti yfir í venjulegt beisli hundsins.Bílstólar eru hentugir fyrir smáhunda þar sem þeir veita þeim betra útsýni en fyrir stærri hundana má fá ábreiður í sætin sem verja áklæðið.Ferðadýna - þessi bæli eru létt og rúllast upp og henta því afar vel á ferðalagi.Skálar er gott að grípa með í ferðalagið undir fóður.Sanal Relax eru slakandi töflur sem geta einnig virkað vel gegn bílveiki.Vatnsbrúsar og skálar þurfa að koma með í ferðalagið og mjög hentugt er að finna brúsa með skál eða skálar sem hellist síður úr á ferðinni.Skyndihjálparsett er nauðsynlegt að hafa með í ferðalagið og einnig gott í lengri göngum.Ferðabúrin frá Nomad eru samþykkt IATA flugbúr og geta hentað vel í hvers kyns ferðalög.Skottbúr og skottgrindur fást í ýmsum stærðum en þær eru yfirleitt stillanlegar svo hægt er að koma þeim fyrir í flesta bíla. Allar nánari upplýsingar er að finna á Gæludýr.is.
Gæludýr Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið Varð móðir sextán ára Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira