Defoe vorkennir West Ham 3. mars 2007 18:15 Defoe var í eldlínunni þegar Tottenham og West Ham mættust fyrr í vetur NordicPhotos/GettyImages
Jermaine Defoe, leikmaður Tottenham og fyrrum leikmaður West Ham, segist kenna í brjóst um stuðningsmenn West Ham sem sjá fram á annað fallið í fyrstu deild á nokkrum árum. Defoe er ekki vinsæll á Upton Park síðan hann fór frá liðinu þegar það féll fyrir þremur árum. "Stuðningsmenn West Ham eru frábærir og eiga sannarlega ekki skilið það mótlæti sem liðið hefur orðið fyrir í vetur. Ég man hvað það fékk þungt á stuðningsmennina þegar við féllum fyrir þremur árum og ég get ekki ímyndað mér að andrúmsloftið hafi verið mikið betra hjá þeim í vetur," sagði Defoe, en West Ham tekur einmitt á móti Tottenham á morgun. Tap þar gæti orðið til þess að sverta enn vonir West Ham um að halda sæti sínu í deildinni. "Þeir vita að tap fyrir okkur á morgun fer langt með að gera út um vonir þeirra að halda sæti sínu og því munu þeir mæta grimmir til leiks. Við þurfum nú líka á stigum að halda svo það er ljóst að hart verður barist," sagði Defoe og sagðist ekki skilja af hverju West Ham væri búið að leika svona illa á leiktíðinni. "Þetta er furðulegt. Það sýndi sig á síðustu leiktíð að West Ham er alls ekki með lélegt lið. Þeir fóru alla leið í bikarúrslitin og eru með fínan mannskap. Það er hinsvegar þannig að þegar liðinu gengur svona illa - fara menn ósjálfrátt að fara í leiki með það fyrir augum að tapa ekki, í stað þess að fara í þá til að vinna. Svona hugarfar er hættulegt."
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira