Lést í sjálfsprottnum bruna 27. september 2011 22:30 Sjálfsprottin bruni.
Það muna kannski margir eftir trommaranum í grínheimildarmyndinni um rokkhljómsveitina Spinal Tap. Þar lýsti söngvari hljómsveitarinnar vandræðum með að halda í trommara sem virtust deyja með ólíklegasta hætti. Meðal annars lést einn þeirra í sjálfsprottnum bruna. Þrátt fyrir að þetta sé dauðdagi sem virðist með ólíkindum þá gerist það engu að síður oftsinnis að fólk deyr vegna sjálfsprottins bruna. Það kviknar einfaldlega í fólki. Og enginn veit af hverju. Þannig fannst 76 ára gamall Íri látinn í síðustu viku. Lík hans var brunnið og af ummerkjum að dæma mátti vera ljóst að það kviknaði í manninum. Ekkert benti þó til þess að það hefði verið kveikt í honum, hvorki með bensíni eða öðrum hætti. Samkvæmt írska meinafræðingnum Dr. Ciaran McLoughlin þá er þetta fyrsta dauðsfallið vegna sjálfsprottins bruna í Írlandi í 25 ár. Fyrirbærið hefur nokkrum sinnum verið notað í skáldskap. Meðal annars lést Hlemmi í þættinum Hlemmavídeó, sem var sýndur á Stöð 2 á síðasta ári, með þessum hætti. Þá lést persóna í sögunni Bleak House eftir Charles Dickens úr sjálfsprottnum bruna. Sú saga var skrifuð árið 1853. Fyrirbærið hefur ekki verið rannsakað ítarlega. Þá er ekki vitað hversu margir hafa látist með þessum hætti. Þó er talið að hundruð manna hafi látist eftir að það kviknaði einfaldlega í þeim. Hægt er að lesa um Írann í Daily Mail hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira