Erlent

Norður Kórea ætlar að skjóta gervihnetti á braut um jörðu

Norður Kóreumenn hafa ákveðið að skjóta á loft geimflaug með gervihnetti um borð til að fagna 100 ára afmæli Kim Il-Sung fyrrum leiðtoga landsins í næsta mánuði.

Þessi ákvörðun er talin brot á ályktun sem samþykkt var í Öryggisráði Sameinuðuþjóðanna árið 2009 þegar Norður Kórea skaut fyrsta gervihnetti sínum á braut um Jörðu. Auk þess kemur hún þvert ofan í samkomulag sem Norður Kórea gerði við Bandaríkjamenn í síðasta mánuði um að hætta öllum tilraunum sínum með langdrægar eldflaugar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×