Erlent

Vegabréf fyrir hunda og ketti

Frá og með 1. október þurfa hundar og kettir sem fara á með yfir Eyrarsund að hafa svokölluð dýravegabréf. Dýralæknar hafa gefið út þessi vegabréf frá 3. júlí sl. Þessar nýjar reglur breyta samt sem áður ekki þeim kröfum sem fyrir voru um gæludýr sem ferðast er með frá Danmörku til Svíþjóðar. Hins vegar er lítill vandi að ferðast með gæludýr frá Svíþjóð til Danmerkur. Auk dýravegabréfsins er munurinn á nýju og gömlu reglunum sá að gæludýrin þurfa ekki heilbrigðisvottorð og ekki þarf að bólusetja þau fyrir leptóspírósu og hundafári. Áfram þarf þó að bólusetja dýrin gegn hundaæði, taka sýni vegna mótefna og framkvæma ormahreinsun áður en farið er með þau frá Danmörku til Svíþjóðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×