Erlent

NATO kannar aðkomu að Írak

Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, ætlar að kynna leiðtogum aðildarríkjanna nýjar tillögur í mánuðinum, um hvernig bandalagið geti komið frekar að málum í Írak. Í síðasta mánuði samþykktu aðildarríki NATO að taka að sér herþjálfun Íraka. Scheffer vonast til að geta kynnt tillögur sínar í ágústbyrjun. Ekki liggur fyrir hvað hann kemur til með að leggja til en hann mun ræða málin frekar við Hosyar Zebari, utanríkisráðherra Íraks,kom í opinbera heimsókn í höfuðstöðvar NATO í gær og lagði til að NATO aðstoði við landamæraeftirlit eða sjái um öryggisgæslu við verkefni á vegum Sameinuðu þjóðannna. Scheffer segist bíða eftir skýrslu hernaðarsérfræðinga NATO sem fóru til Íraks í vettvangsrannsókn og munu leggja tillögur sínar fram í kjölfarið. Málið er viðkvæmt því Frakkar sögðu á fundinum í júní að það kæmi ekki til greina af sinni hálfu að NATO athafni sig í Írak. Þeir leggja til að þjálfun Írakshers fari fram í öðru landi en bandarísk stjórnvöld telja það ekki gerlegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×