Enski boltinn

Öll mörk gærdagsins á Vísi

Eins og ávallt má sjá samantektir úr öllum leikjum liðinnar umferðar í ensku úrvalsdeildinni á Sjónvarpsvef Vísis.

Myndböndin birtast á mánudagsmorgni og eru í birtingu í eina viku. Þar má sjá öll mörk leikjanna sem og helstu tilþrifin.

Að lokinni hverri umferð birtast svo myndbönd þar sem umferðin er gerð upp í máli og myndum. Leikmaður og lið umferðarinnar er valið, sem og bestu mörkin, bestu markvörslurnar, flottustu tilþrifin, eftirminnilegasta augnablikið.

En fyrir þá sem vilja einfaldlega sjá allt það helsta sem gerðist í umferðinni í stuttu og skemmtilegu myndbandi er það einnig í boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×