Sjöunda sætið gæti gefið af sér Evrópuleiki næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2017 17:00
Það verða ekkert nema topplið í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í ár en það var ljóst eftir að Manchester City, Arsenal og Tottenham komust áfram í gegnum átta liða úrslitin um helgina. Í kvöld bætast síðan annaðhvort Chelsea eða Manchester United í hópinn sem þýða að liðin fjögur í undanúrslitunum eru meðal sex efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar. Fjögur efstu liðin fara í Meistaradeildina á næstu leiktíð og fimmta sætið gefur síðan sæti í Evrópudeildinni. Liðin sem vinna enska bikarinn og enska deildabikarinn fá líka Evrópudeildarsæti. Manchester United vann enska deildabikarinn á dögunum og er því öruggt með að minnsta kosti sæti í enska deildabikarnum. Nú eru öll liðin sem eiga ennþá möguleika á því að vinna ensku bikarkeppnina meðal þeirra sex efstu. Það þýðir að nú er næsta öruggt að sjöunda sætið í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili gefi af sér Evrópuleiki næsta vetur. Sky Sports skoðaði stöðuna. Everton er nú í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og það eru sjö stig í áttunda sætið þar sem West Bromwich Albion situr. Liðin í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar fær Evrópudeildarsætið ef eitt af eftirtöldu gerist:Ensku deildabikarmeistararnir (Man. United) verða meðal sex efstu liðannaEnsku bikarmeistararnir verða meðal sex efstu liðannaLeicester City vinnur ekki Meistaradeildina Á ofantöldu sést að það eru miklar líkur á því að Evrópudeildarsætið endi á Goodison Park og að Liverpool gæti átt tvö Evrópulið næsta vetur. Evrópudeildarsæti Everton gæti snert okkur Íslendinga því íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er aftur og aftur orðaður við Everton í enskum fjölmiðlum.
Enski boltinn Mest lesið Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Sjá meira