Erlent

Fjórir látnir eftir árás í garð­veislu í Fresno

Atli Ísleifsson skrifar
Árásarmennirnir komust undan og enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Árásarmennirnir komust undan og enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. AP
Tíu voru skotnir og þar af eru fjórir látnir eftir að óþekktir aðilar hófu skothríð í garðveislu í Fresno í Kaliforníu í gærkvöldi.

Árásin átti sér stað um klukkan sex síðdegis að þarlendum tíma og var fólkið samankomið til að horfa á leik í ameríska fótboltanum.

Árásarmennirnir komust undan og enginn hefur verið handtekinn vegna málsins allt er á huldu um ástæður árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×