Rooney: United þarf tvo leikmenn í viðbót til að vinna tititlinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2018 16:00 Wayne Rooney með enska meistarabikarinn þegar Manchester United vann hann síðast árið 2013. Vísir/Getty
Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að hans gamla félag þurfi að styrkja sig ætli liðið að eiga alvöru möguleika á því að vinna enska meistaratitilinn næsta vor. Manchester United endaði í öðru sæti í deildinni síðasta vor á eftir nágrönnum sínum í Manchester City en City var með yfirburðarlið á síðustu leiktíð og fékk sem dæmi 19 fleiri stig en United. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur verið mjög pirraður á undirbúningstímabilinu og kallað eftir nýjum leikmönnum en ekkert hefur gerst ennþá. Rooney er sammála gamla stjóranum sínum. Wayne Rooney fór til Everton fyrir ári síðan en er núna orðinn leikmaður DC United í bandarísku MLS-deildinni. „Það verður erfitt að ná City eftir síðasta tímabil. City-liðið hefur verið að spila frábæran fótbolta,“ sagði Wayne Rooney við Sky Sports. „Ég vona samt að eitthvert lið nái í skottið á þeim. Það væri gott og vonandi tekst Manchester United að brúa bilið. Ég held samt að þeir þurfi þá að styrkja sig um einn eða tvo leikmenn,“ sagði Rooney. „Ég er viss um að Jose (Mourinho) sé búinn að undirbúa liðið vel. Ég veit að það hefur verið mikil umræða um undirbúningstímabil liðsins í fjölmiðlum en ég er viss um það að bak við tjöldin þá hefur Jose gert réttu hlutina,“ sagði Rooney. „Þeir mæta Leicester á föstudaginn og vonandi tekst þeim að taka eitt skref til viðbótar og ná titlinum til baka,“ sagði Rooney. Wayne Rooney lék í þrettán ár með Manchester United (2004–2017) og varð fimm sinnum enskur meistari með liðinu (20007, 2008, 2009, 2011 og 2013).
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira