Yaya Toure kvaddur með stæl Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. maí 2018 20:45 Yaya Toure kveður Man City vísir/getty Það var lítið undir á Etihad leikvangnum í Manchester í kvöld þegar nýkrýndir Englandsmeistarar Man City fengu nýliða Brighton í heimsókn en síðarnefnda liðið var búið að tryggja veru sína meðal þeirra bestu fyrir leik kvöldsins. Brasilíski bakvörðurinn Danilo kom Man City yfir snemma leiks en Argentínumaðurinn Leonardo Ulloa jafnaði metin fyrir Brighton. Portúgalinn Bernardo Silva sá til þess að City færi með forystu í leikhlé. Annar Brasilíumaður, Fernandinho, gulltryggði svo enn einn sigur Man City með marki á 72.mínútu og þægilegur sigur meistaranna staðreynd. Leikurinn var settur upp sem eins konar kveðjuleikur fyrir Yaya Toure en Fílbeinsstrendingurinn stóri og stæðilegi bar fyrirliðabandið og fékk heiðursskiptingu á 86.mínútu en hann mun yfirgefa Man City í sumar. Enski boltinn
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn