Heimsmethafi kennir leikmönnum Liverpool að taka innköst í vetur | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. ágúst 2018 13:30 Thomas Grönnemark veit hvað hann syngur í innkast-fræðunum. mynd/skjáskot
Allt er nú til í boltanum nú til dags, meðal annars sérfræðingar í innköstum. Skyldi svo sem engan undra miðað við hversu mikið hægt er að fá út úr þeim eins og íslenska landsliðið hefur margsinnis sannað á undanförnum árum. Liverpool hefur ráðið til sín danskan sérfræðing í innköstum sem mun kenna leikmönnum liðsins að grýta boltanum af krafti inn á teiginn í vetur en maðurinn heitir Thomas Grönnemark og hefur áður starfað fyrir Schalke, Herthu Berlín og Midtjylland. Grönnemark veit hvað hann syngur í þessum efnum en hann á heimsmetið þegar kemur að löngu innkasti. Hann hefur lengst varpað boltanum 51,33 metra. Grönnemark var einn af mönnunum á bak við frábæran árangur danska úrvalsdeildarliðsins FC Midtjylland í Evrópudeildinni fyrir þremur árum síðan en það var þá þekkt fyrir sterk föst leikatriði. „Löng innköst geta verið vopn séu þau framkvæmd með réttri tækni og mikilli nákvæmni. Það er mikilvægt að þau séu flöt því auðvelt er að verjast of háum innköstum. Það er auðveldara að skora með flötu innkasti sem er nákvæmt,“ segir Thomas Grönnemark. Hér að neðan má sjá stutt kennslumyndband frá Dananum þar sem að hann kennir tvö trix úr bókinni sinni.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Sjá meira