Tími fyrir Torreira: Arsenal kynnti nýjan leikmann í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2018 14:24 Lucas Torreira í búningi Arsenal. Mynd/Arsneal
Úrúgvæmaðurinn Lucas Torreira er orðinn leikmaður Arsenal en félagið staðfesti nýjasta leikmanninn sinn á miðlum sínum í dag. Arsenal kaupir miðjumanninn frá ítalska félaginu Sampdoria þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Hann var áður í láni hjá Pescara í eitt tímabil. Lucas Torreira er 22 ára afturliggjandi miðjumaður sem var fastamaður í landsliði Úrúgvæ á HM í fótbolta þar sem hann og félagar hans komust í átta liða úrslitin. Arsenal kynnti Lucas Torreira á Twitter með því að segja að nú væri „Tími fyrir Torreira“ eins og sjá má hér fyrir neðan.The wait is over… it's #TimeForTorreira Welcome to Arsenal, @LTorreira34pic.twitter.com/wnUDYuDMeS — Arsenal FC (@Arsenal) July 10, 2018 „Við höfum nú samið við ungan og hæfileikaríkan leikmann. Ég hef haft unun af því að horfa á hann spila með Sampdoria undanfarin tvö tímabil. Við sáum hann líka standa sig mjög vel á HM,“ sagði Unai Emery, nýr knattspyrnustjóri Arsenal. „Hann er ungur en er þegar kominn með mikla reynslu. Hann vill halda áfram að vaxa sem knattspyrnumaður. Við bjóum Lucas velkominn til Arsenal og hlökkum til að sjá hann með okkur á undirbúningstímabilinu,“ sagði Unai Emery. Lucas Torreira verður í treyju númer ellefu hjá Arsenal en hann tekur við því númeri af Mesut Özil sem færir sig í tíuna. Unai Emery hafði áður fengið þrjá nýja leikmenn til félagsins en það eru Svisslendingurinn Stephan Lichtsteiner (frá Juventus), þýski markvörðurinn Bernd Leno (frá Bayer Leverkusen) og gríski varnarmaðurinn Sokratis Papastathopoulos (frá Borussia Dortmund).
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira