Þægileg byrjun hjá bæði Liverpool og Manchester United: Risaleikur í fyrstu umferð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2018 08:10 Það gæti verið gaman hjá Liverpool mönnum í upphafi tímabils. vísir/getty
Það verður sannkallaður stórleikur í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en í morgun var leikjaröðun næsta tímabils í ensku úrvalsdeildinni gerð opinber. Unai Emery fær heimaleik í fyrsta deildarleik sem knattspyrnustjóri Arsenal en mótherjinn er ekki af lakari gerðinni eða Englandsmeistarar Manchester City. Ekki verður það mikið léttara í næsta leik á eftir því þá heimsækir Arsenal lið Chelsea. Arsenal spilar heimaleikinn á móti nágrönnum sínum í Tottenham 1. desember en Tottenham tekur síðan á móti Arsenal 2. mars. Fyrsti leikur Tottenham á nýja leikvanginum sínum verður á móti Liverpool helgina 15. til 16. september.Next season's opening Premier League fixtures: Unai Emery's Arsenal tenure starts at home to the champions #PremierLeaguefixtureshttps://t.co/IaBQNYMqPJpic.twitter.com/hDwe4d1743 — Telegraph Football (@TeleFootball) June 14, 2018 Þessi fyrsti leikur er án efa sá erfiðasti hjá Manchester City í upphafi móts því svo taka við leikir á móti Huddersfield, Wolves, Newcastle, Fulham, Cardiff City og Brighton. Fyrri Manchester slagurinn er 10. nóvember á Etihad en liðin mætast svo á Old Trafford 16. mars. Manchester United hefur allt til alls til að byrja vel því í fyrstu sjö umferðunum spila United-menn við Leicester City, Brighton, Burnley, Watford, Wolves, West Ham og Newcastle. Liverpool á frekar þægilega byrjun. Fyrstu fjórir leikir liðsins eru á móti West Ham, Crystal Palace, Brighton og Leicester en svo taka við svakalegar þrjár vikur þar sem lærisveinar Jürgen Klopp spila við Tottenham, Chelsea og Manchester City. Enska úrvalsdeildin hefst 11. ágúst og lýkur síðan 19. maí 2019. Fjórar umferðir fara fram áður en kemur að fyrsta landsleikjahléinu sem er í byrjun september.Hér má nálgast allar umferðirnar.
Enski boltinn Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira