Sjáðu magnað myndband af sigurmarki Birkis Bjarna í 360° myndavél Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2018 11:30 Birkir Bjarnason fagnar hér sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var hetja Aston Villa í 3-2 sigri á Wigan Athletic í ensku b-deildinni um helgina. Birkir hafði enn á ný úthald í góðan sprett í blálokin (muna ekki allir eftir Austurríkileiknum á EM 2016) og skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Birkir var þá réttur maður á réttum stað í markteignum og kom tryggði Villa mönnum öll þrjú stigin. Aston Villa var mjög sátt með íslenska landsliðsmanninn og setti myndband af sigurmarkinu inn á Youtube-síðu félagsins. Þetta er hins vegar svolítið sérstakt myndband því það var tekið upp með 360° myndavél fyrir aftan markið. Myndbandið magnaða má sjá hér fyrir neðan. Prófið að hreyfa tölvumúsina á meðan þið horfið.Fyrir leikinn var orðrómur um að Birkir væri á förum frá félaginu en hann minnti heldur betur á sig þarna. Birkir fékk aðeins sjö mínútur í fyrsta leiknum en spilaði allar 90 mínúturnar í þessum leik. Aston Villa hefur unnið báða leiki sína á tímabilinu og skorað í þeim sex mörk. Birkir Bjarnason skoraði þrjú mörk fyrir Aston Villa í ensku b-deildinni á síðustu leiktíð en hann skoraði þá á móti Bristol City, Wolves og Reading. Fyrsta markið hans þá kom hins vegar ekki fyrr en á nýársdag og markið um helgina er því fjórða deildarmark Birkis á árinu 2018. Aston Villa hefur unnið alla þessa fjóra leiki þar sem Birkir hefur verið á skotskónum.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira