Þetta sannar það að markasóknir Arsenal geta alveg byrjað hjá Cech Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2018 17:30 Petr Cech. Vísir/Samsett/Getty
Mikil umræða var um breyttar áherslur nýja knattspyrnustjóra Arsenal í síðustu viku eftir nokkrar ansi klaufalegar sendingar tékkneska markvarðarins Petr Cech. Um helgina mátti þó strax sjá mikinn mun. Arsenal-liðið er stigalaust eftir fyrstu tvo deildarleiki sína undir stjórn Unai Emery en mótherjarnir hafa vissulega verið Manchester City og Chelsea. Tvö lið sem munu berjast um titilinn í vetur og hafa bæði fullt hús eftir tvo leiki. Það mátti hins vegar sjá framför á leik Arsenal liðsins í leiknum um helgina þegar liðið skoraði tvö fyrstu mörkin sín á leiktíðinni og kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir á móti Chelsea. Chelsea náði reyndar að tryggja sér sigur í seinni hálfleiknum og ágæt frammistaða Arsenal-manna og tvö góð mörk skiluðu því engum stigum. Unai Emery vill að leikmennirnir sýnir spili boltanum frá markinu og það hefur búið til mikla áskorun fyrir reynslumikinn markvörð eins og Petr Cech. Cech hefur nefnilega ekki mikila reynslu á að spila boltanum út. Enginn markvörður kom eins oft við boltann í fyrstu umferðinni og Cech og aðeins einn annar leikmaður Arsenal fékk boltann oftar. Í tengslum við umræðuna um vandræði Petr Cech að fá boltann svona mikið hafa menn bent á annað mark Arsenal á Stamford Bridge á laugardaginn.19 - Alex Iwobi's goal for @Arsenal yesterday ended a sequence of 19 passes and involved 10 of their players (all except Pierre-Emerick Aubameyang); the longest move for a goal so far in the 2018-19 Premier League. Encouraging. pic.twitter.com/Z5q8UgyYd7 — OptaJoe (@OptaJoe) August 19, 2018Seinna mark liðsins, sem Alex Iwobi skoraði, kom eftir frábæra sókn þar sem tíu af ellefu leikmönnum liðsins gáfu alls 19 sendingar sín á milli. Þessi eini sem tók ekki þátt í undirbúningi marksins var þó ekki umræddur Petr Cech heldur framherjinn Pierre-Emerick Aubameyang. Markið sem má sjá teiknað upp hér fyrir ofan sýnir það og sannar að markasóknir Arsenal geta alveg byrjað hjá Petr Cech. Verði sömu framfarir á sendingum Petr Cech og leik Arsenal liðsins milli leikja í þessari viku þá má vel búast við fyrsta sigri liðsins í næsta leik sem er á móti West Ham United á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Sá gamli tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira