Valsbanarnir í Rosenborg kaupa leikmann frá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2018 17:45 Pedro Chirivella er með Liverpool í Bandaríkjaferðinni. Vísir/Getty
Norska liðið Rosenborg hefur styrkt liðið fyrir baráttuna framundan með leikmanni frá Liverpool. Rosenborg mun borga Liverpool 3,5 milljónir punda fyrir Spánverjann Pedro Chirivella. Rosenborg sló Val naumlega út úr Meistaradeildinni á dögunum en taoaði 3-1 fyrir Celtic í fyrri leik sínum í annarri umferð undankeppninnar. Chirivella gæti mögulega náð seinni leiknum. Pedro Chirivella er 21 árs varnarsinnaður miðjumaður sem hefur verið í láni hjá hollensku félögunum Go Ahead Eagles og Willem II undanfarin ár. Chirivella spilaði síðast með Liverpool í 4-1 sigri á Manchester United í æfingaleik í Bandaríkjunum um helgina. Chirivella er fæddur í Valencia á Spáni en hann kom til Liverpool árið 2013 eða þegar hann var aðeins sextán ára gamall. Hann spilaði á sínum tíma fimmtán leiki fyrir spænska sautján ára landsliðið.BREAKING: Liverpool accept £3.5million bid from Rosenborg for Pedro Chirivella. Liverpool have included a buy-back option. #LFCpic.twitter.com/uxR2YaSZov — Anfield Edition (@AnfieldEdition) July 29, 2018 Fjölskylda hans flutti með honum norður til Liverpool og Chirivella fékk síðan sinn fyrsta atvinnumannasamning árið 2014. Pedro Chirivella náði aðeins að spila fimm leiki með Liverpool í öllum keppnum en hann lék 17 leiki með Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni 2016-17 (2 mörk, 2 stoðsendingar) og 31 leik með Willem II í hollensku úrvalsdeildinni 2017-18 (0 mörk, 3 stoðsendingar). Liverpool er þó ekki alveg búið að slíta sig frá Chirivella því félagið hefur forkaupsrétt á Spánverjanum næstu þrjú tímabil hans í Noregi.
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Sjá meira