Silva um rauða spjaldið: Þetta var ekki brot Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. ágúst 2018 21:45 Silva var ekki sáttur Vísir/Getty
Marco Silva, knattspyrnustjóri Everton, sagði Phil Jagielka ekki hafa brotið af sér þega honum var sýnt rauða spjaldið í leik Everton og Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jagielka fékk beint rautt spjald fyrir brot á Diego Jota undir lok fyrri hálfleiks í leiknum á Molineux vellinum í Wolverhampton. Dómari leiksins, Craig Pawson, gaf út eftir leikinn að rauða spjaldið hafi verið vegna þess að Jagielka rændi Jota af upplögðu marktækifæri. Hann sagði þó að brotið sjálft hefði líka getað verðskuldað spjaldið. „Þetta er ströng ákvörðun. Það er ekki að sjá neitt brot, við fáum rautt spjald og þeir skora úr aukaspyrnunni,“ sagði Silva eftir leikinn. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli eftir að Everton hafði tvisvar komist yfir. „Hann dæmdi ekkert í fyrstu en eftir tvær sekúndur þá snéri hann við og gaf rauða spjaldið. En þetta er staðan og við þurfum að sætta okkur við þessa ákvörðun.“ Silva tók Gylfa Þór Sigurðsson út af þegar rauða spjaldið fór á loft til þess að breyta leiksskipulagi sínu. „Það þarf að leggja liðið upp öðruvísi þegar maður er bara með 10 menn. Við vorum mjög skipulagðir í seinni hálfleiknum. Það mátti búast við því að þeir væru meira með boltann en við áttum hættulegri færi,“ sagði Marco Silva.
Enski boltinn Tengdar fréttir Richarlison tryggði tíu mönnum Everton stig Richarlison skoraði tvö mörk í fyrsta leik sínum fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tíu menn Everton sóttu eitt stig gegn nýliðum Wolverhampton Wanderers. 11. ágúst 2018 18:15 Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Dagskráin í dag: Messan, meistarar Víkings, píla og NFL-veisla Sport Fleiri fréttir Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Sjá meira
Richarlison tryggði tíu mönnum Everton stig Richarlison skoraði tvö mörk í fyrsta leik sínum fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tíu menn Everton sóttu eitt stig gegn nýliðum Wolverhampton Wanderers. 11. ágúst 2018 18:15