Fyrrum stjarna Man. United: Pogba búinn að vera martröð fyrir félagið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2018 09:30 Paul Pogba. Vísir/Getty
Goðsögnin Paul Ince lætur nýjan fyrirliða Manchester United liðsins heldur betur heyra það í viðtali við enska blaðið Daily Mirror. Franski heimsmeistarinn Paul Pogba vill nú komast til Barcelona og á í opinberum deilum við knattspyrnustjórann Jose Mourinho. Manchester United segir ekki ætla að selja miðjumanninn öfluga. Paul Ince kallar Pogba athyglissjúkan og segir leikmanninn vera í heimskum leik. „Maður hefði nú haldið að eftir að Paul Pogba fór á HM þar sem hann var frábær, að hann myndi koma glaður til baka með heimsmeistaragullið um hálsinn og klár í nýtt tímabil,“ sagði Paul Ince við Daily Mirror og bætti við: „Það er ekki svo. Hann er búin að vera algjör martröð eftir að hann kom til baka,“ sagði Ince. „Leikmaður verður, burtséð frá því hvort hann sé ánægður eða óánægður að kunna að hegða sér,“ sagði Ince.Paul Pogba's relationship with Manchester United boss Jose Mourinho is at an all-time low... who will blink first?https://t.co/RCGvAQxH6Lpic.twitter.com/bp0drmvYi0 — Mirror Football (@MirrorFootball) August 17, 2018„Hann var fyrirliði United í fyrsta leik tímabilsins á móti Leicester þar sem hann spilaði frábærlega. Svo segir hann þetta í viðtali eftir leik. Ég get ekki séð þetta annað en að þarna sé maður sem vill fá athygli og eiga umræðuna,“ sagði Ince. „Paul Pogba hefur of mikið að segja. Mourinho gerði hann að fyrirliða í síðustu viku sem er mikill heiður og heiður sem hann vanmetur greinilega. Ef Jose fyndist svona lítið til hans koma þá hefði hann ekki látið hann fá fyrirliðabandið,“ sagði Ince. „Hann átti mjög góðan leik, spilaði eins og sannur fyrirliði, en enginn er að tala um það af því að það eru allir að einblína á skrípalætin hans utan vallar,“ sagði Paul Ince. Paul Ince var í stóru hlutverki á miðju Manchester United þegar sigurganga félagsins hófst í byrjun tíunda áratugsins en hann vann níu titla með félaginu frá 1990 til 1995. Manchester United keypti Paul Ince fyrir milljón pund haustið 1989 og liðið vann sinn fyrsta titil undir stjórn Alex Ferguson vorið eftir.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira