Hér ástæðan af hverju stuðningsmenn Liverpool hafa svona miklar áhyggjur af fjarveru Mane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2017 19:30 Sadio Mane lék síðasta leik á móti Newcastle. Vísir/Getty
Senegalinn Sadio Mane verður frá keppni næstu sex vikurnar vegna meiðsla og getur því ekkert hjálpað Liverpool-liðinu að komast aftur í gang eftir erfiðan septembermánuð. Mane meiddist í landsliðsverkefni með Senegal og í dag kom í ljós að meiðslin eru það alvarleg að hann missir af meira en mánuði. Stuðningsmenn Liverpool hafa miklar áhyggjur af þessu enda sýnir tölfræðin það að það munar miklu fyrir liðið hvort Mane spilar eða ekki. Knattspyrnutölfræðisíðan Whoscored.com tók saman gengi Liverpool-liðsins frá komu Mane frá Southampton eftir því hvort Sadio Mane var í byrjunarliðinu eða ekki. Þessa tölfræði má sjá hér fyrir neðan.Liverpool with and without Sadio Mane starting in the Premier League -- Doesn't make for good reading for Liverpool fans... pic.twitter.com/qgeX1tVdab — WhoScored.com (@WhoScored) October 10, 2017 Liverpool hefur þannig unnið 61 prósent leikja sem Sadio Mane hefur byrjað en aðeins 43 prósent leikjanna sem hann hefur ekki verið í byrjunarliðinu. Það er líka mikill munur á markaskori liðsins en Liverpool er að skora 2,23 mörk í leik þar sem Sadio Mane byrjar en aðeins 1,57 mark að meðaltali þegar Mane byrjar ekki. Sadio Mane byrjaði tímabilið frábærlega og skoraði meðal annars í þremur fyrstu deildarleikjum tímabilsins. Hann fékk síðan þriggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt spjald á móti Manchester City og Liverpool-liðið hefur verið í tómu tjóni í leikjum sínum síðan. Mane var kominn aftur inn í liðið í síðasta deildarleiknum fyrir landsleikjahléið en nú spilar hann ekki aftur með liðinu fyrr en seint í nóvember. Liverpool þarf að fara að gefa í ef liðið ætlar að vera með í toppbaráttunni en liðið hefur tapað mörgum stigum á móti „litlu“ liðum ensku úrvalsdeildarinnar að undanförnu. Fjarvera Mane eru því allt annað en góðar fréttir.
Enski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira