Skorar Gylfi aftur gegn Chelsea? | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. febrúar 2017 10:00
Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City sækja topplið Chelsea heim. Chelsea getur náð 11 stiga forskoti með sigri en liðið hefur verið nær óstöðvandi undanfarna mánuði. Swansea hefur einnig gengið vel að undanförnu en liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Gylfi og félagar eru í 15. sæti deildarinnar með 24 stig, fjórum stigum frá fallsæti. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum á Liberty vellinum. Gylfi skoraði fyrra mark Swansea úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Everton, sem hefur verið eitt besta lið deildarinnar eftir áramót, fær botnlið Sunderland í heimsókn. Svörtu kettirnir hans Davids Moyes steinlágu fyrir Southampton, 0-4, í síðustu umferð á meðan Everton gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough. Boro sækir Crystal Palace heim í afar mikilvægum leik í botnbaráttunni. Palace er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 19 stig á meðan Boro er í því sextánda með 22 stig. Hull City hugsar sér eflaust gott til glóðarinnar er liðið fær Burnley í heimsókn. Burnley er lélegasta útivallarlið deildarinnar en það hefur aðeins náð í eitt stig á útivelli í vetur. West Brom og Bournemouth eigast við á The Hawthornes. Lærisveinar Tonys Pulis eru í góðum málum í 8. sæti deildarinnar á meðan Bournemouth er farið að nálgast fallsvæðið eftir slakt gengi að undanförnu. Í síðasta leik dagsins sækir West Ham United Watford heim. Watford vann fyrri leikinn með fjórum mörkum gegn tveimur. Síðan þá hefur margt breyst en West Ham hefur verið á góðri siglingu að undanförnu.Leikir dagsins: 15:00 Chelsea - Swansea 15:00 Everton - Sunderland 15:00 Crystal Palace - Middlebrough 15:00 Hull - Burnley 15:00 West Brom - Bournemouth 17:30 Watford - West Ham
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Sjá meira