Leikmenn fara í 14 mínútna einkaflug á meðan stuðningsmennirnir blæða | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. mars 2017 12:00 Freddie Flintoff er brjálaður. mynd/skjáskot
Freddie Flintoff er fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins í krikket og einn dáðasti íþróttamaður Englands á seinni árum. Hann hefur undanfarin ár starfað sem fjölmiðlamaður og er nú kominn með hlaðvarpsþátt á BBC ásamt fyrrverandi fótboltamanninum Robbie Savage. Þar fara þeir félagarnir yfir allt það helsta í íþróttum en í síðasta þætti tók Flintoff tryllinginn á ensku fótboltafélögin og beindi spjótum sínum aðallega að Arsenal. Hann vill meina að gjáin milli félaganna og stuðningsmannanna sé að breikka og nefnir dæmi: „Þegar talað er um fótbolta og íþróttir í dag er sagt að stuðningsmennirnir sem safna alla vikuna til að geta komist á leiki á laugardögum nái engri tengingu við leikmennina,“ segir Flintoff sem bendir á að lægsta miðaverðið á leiki með Arsenal sé 27 pund en það hæsta 97 pund. „Stuðningsmenn eru kannski búnir borga miðann og taka síðan lest á leikinn eða neðanjarðarlest. Þeir eyða 50 pundum í ferðalagið en komast svo að því að leikmennirnir eru að fara að fljúga til Norwich í einkaflugvél! Það tekur fjórtán mínútur. Þeir geta tekið rútu til Norwich.“ „Svo fara þeir til Bournemouth á einkaflugvél líka. Það eru sturtur í þessum vélum og 2.500 sjónvarpsstöðvar svo þessum greyjum leiðist ekki í allar fjórtán mínúturnar sem það tekur að fljúga til Bournemouth.“ „Það eru stuðningsmennirnir sem borga á endanum þessi ferðalög. Hvernig geta leikmennirnir litið í augu stuðningsmannanna þegar verið er að eyða svona miklum pening í ferðalög,“ segir Freddie Flintoff. Þessa eldræðu Freddie Flintoff má sjá í spilaranum hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Enski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Enski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Íslenski boltinn Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Körfubolti Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira