Stjóri Gylfa kryddar umræðuna fyrir leik helgarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2017 16:45 Gylfi Þór Sigurðsson sést hér óánægður með ákvörðun Mike Dean í leik Swansea um síðustu helgi. Vísir/Getty
Swansea City hefur verið duglegt að safna stigum að undanförnu og hefur með því tekist að komast upp úr fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. Framundan er athyglisverður leikur á móti Englandsmeisturunum í Leicester City sem eru á óvanalegum slóðum fyrir lið í titilvörn. Swansea-liðið er nú með 21 stig í 17. sæti deildarinnar eða jafnmörg stig og Leicester. Það er aðeins eitt stig niður í fallsæti og því gæti tap í leik helgarinnar þýtt að viðkomandi lið sæti í fallsæti að henni lokinni. Swansea tekur á móti Leicester City á Liberty-leikvanginum á sunnudaginn og úrslit leiksins gætu haft veruleg áhrif á hvert framhaldið verður í fallbaráttunni hjá þessum tveimur liðum. Paul Clement, knattspyrnustjóri Swansea, hefur gert góða hluti með velska liðið síðan að hann tók við og hann var ekkert að reyna að draga úr mikilvægi leiksins á blaðamannafundi. „Sálfræðilega gæti það verið mikil vítamínssprauta fyrir okkur að spila vel og vinna þennan leik,“ sagði Paul Clement. „Liðin eru jöfn að stigum og mætast heldur ekki oftar á tímabilinu. Það gefur þessum leik auka þýðingu (extra spice),“ sagði Clement. Swansea City hefur spilað fjóra deildarleiki undir stjórn Paul Clement og liðið hefur unnið tvo þeirra. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað í þremur leikjum í röð og alls átt beinan þátt í fjórum mörkum í þessum fjórum leikjum.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira