Aston Villa vinnur aftur með Birki Bjarna á bekknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2017 21:44 Jonathan Kodjia fagnar marki sínu í kvöld en lék áður með Bristol City. Vísir/Getty
Aston Villa vann í kvöld sinn annan leik í röð í ensku b-deildinni í fótbolta en liðið vann þá 2-0 heimasigur á Bristol City í Íslendingaslag þar sem íslensku landsliðsmennirnir voru á varamannabekknum. Newcastle vann á sama tíma toppslaginn á móti Brighton & Hove Albion. Aston Villa tapaði fimm fyrstu leikjum sínum eftir að Birkir Bjarnason kom til liðsins frá Basel en hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir að íslenski landsliðsmaðurinn missti sæti sitt í byrjunarliðinu. Aston fylgdi eftir 1-0 sigri á Derby um helgina með því að vinna Bristol City í kvöld en báðir leikirnir fóru fram á Villa Park Jonathan Kodjia fékk frábært tækifæri til að skora í fyrri hálfleik en skaut þá hátt yfir úr vítaspyrnu. Jonathan Kodjia bætti fyrir það með því að koma Aston Villa í 1-0 á 54. mínútu og fimm mínútum síðar bætti varamaðurinn Conor Hourihane við öðru marki. Albert Adomah átti stoðsendinguna í báðum mörkunum. Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður fyrir Andre Green á 86. mínútu en Green meiddist. Hörður Björgvin Magnússon sat allan tímann á varamannabekknum hjá Bristol City. Newcastle vann 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti Brighton í uppgjör toppliðanna í kvöld. Glenn Murray kom Brighton í 1-0 með marki úr vítaspyrnu strax á 14. mínútu en Mohamed Diamé jafnaði fyrir Newcastle á 81. mínútu. Það var síðan Ayoze Perez sem skoraði sigurmarkið á 89. mínútu. Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle, gerði sókndjarfa skiptingu þegar sextán mínútur voru eftir og hún skilaði tveimur mörkum og þremur stigum. Newcastle komst upp fyrir Brighton og í toppsætið með þessum sigri. Newcastle er nú með 73 stig en Brighton er áfram með 71 stig. Það eru síðan sex stig í Huddersfield Town í þriðja sætinu en tvö efstu liðin fara beint upp.
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Fótbolti Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira