Þóttist vera allt annar í símtalinu sem fékk Sir Alex til að koma til Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2017 08:00 Sir Alex Ferguson og Martin Edwards. Vísir/Getty
Þessa dagana er liðið 31 ár síðan að Sir Alex Ferguson tók við liði Manchester United og hóf vegferðina að gera félagið að því sigursælasta í enska fótboltanum. Þessi ráðning er því ein sú mikilvægast í sögu enska fótboltans. Að þessu tilefni var þáverandi stjórnarformaður Manchester United, Martin Edwards, tekinn í viðtal í netþættinum The Warm Down þar sem Edwards sagði frá því hvernig hann fékk Sir Alex Ferguson til Manchester á sínum tíma. Sir Alex Ferguson var þá knattspyrnustjóri skoska félagsins Aberdeen og hafði unnið ellefu titla með félaginu frá 1979 til 1986 þar á meðal Evrópukeppni bikarhafa vorið 1983. Þegar Manchester United rak Ron Atkinson í nóvember 1986 þá var ákveðið að Martin Edwards myndi heyra hljóðið í Alex Ferguson. „Augljóslega gat ég ekki tekið upp símann og hringt í ritarann hjá Aberdeen, kynnt mig sem Martin Edwards og spurt hvort ég mætti tala við Alex Ferguson,“ sagði Martin Edwards en á þessum tíma voru engir farsímar til. „Einn af stjórnarmönnunum kom með þá hugmynd að taka upp skoskan hreim og segja að ég væri umboðsmaður Gordon Strachan eða endurskoðandi,“ sagði Martin Edwards. „Um leið og ég náði tali af Alex spurði ég hann hvort það væri þess virði fyrir okkur að koma í heimsókn og ég fékk strax réttu straumana frá honum,“ sagði Edwards. „Við ákváðum að hittast þarna strax um kvöldið. Þetta var áður en Ron var rekinn. Það var samt enginn óskalisti en ég hafði hitt Alex þegar við gengum frá kaupunum á Gordon Strachan,“ sagði Edwards. Viðtalið við Martin Edwards í The Warm Down netþættinum má finna allt hér fyrir neðan. Þetta símtal breytti heldur betur knattspyrnusögunni á Englandi. Manchester United var níu meistaratitlum á eftir Liverpool (7-16) þegar Sir Alex tók við en liðið vann Englandsmeistaratitilinn alls þrettán sinnum undir stjórn Skotans og komst þar með upp í efsta sætið yfir sigursælasta lið Englands. United vann alls 38 titla á 26 árum undir stjórn Sir Alex Ferguson þar af Meistaradeildina tvisvar og enska bikarinn fimm sinnum.Sir Alex Ferguson þegar hann var kynntur sem stjóri Manchester United árið 1986.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira