Sagði Trump hafa mistekist að verja þjóð sína Samúel Karl Ólason skrifar 12. desember 2017 17:59 Ullah sagði lögregluþjónum að hann hefði hlotið innblástur frá Íslamska ríkinu en er ekki talinn hafa verið í samskiptum við vígamenn samtakanna. Vísir/AFP
Akayed Ullah sem hefur verið ákærður fyrir að reyna að fremja hryðjuverkaárás setti færslu á Facebook skömmu áður en hann reyndi að sprengja sprengju í New York í gær. Þar virtist hann senda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, viðvörun vegna árásarinnar. Ullah særðist sjálfur alvarlega í árásinni og þrír aðrir munu hafa hlotið minniháttar sár. „Trump þér hefur mistekist að vernda þjóð þína,“ skrifaði Ullah á Facebook. Þetta kom fram í dómsal í dag þar sem áðurnefnd ákæra var lögð fram.Ullah sagði lögregluþjónum að hann hefði hlotið innblástur frá Íslamska ríkinu en er ekki talinn hafa verið í samskiptum við vígamenn samtakanna. Hann mun einnig hafa sagt að tilefni árásarinnar væru aðgerðir Bandaríkjanna gegn ISIS.Sjá einnig: Viðvaningur reyndi að fremja hryðjuverkaárásVið leit lögregluþjóna á heimili Ullah fannst vegabréf sem hann hafði skrifað á orðin: „O Ameríka, deyðu í bræði.“ Þá kom einnig fram í dómsalnum í dag að Ullah hefði fyllt pípusprengjuna sem hann hafði búið til af skrúfum. Ríkisstjóri New York sagði fjölmiðlum í gær að sprengiefnið í sprengjunni hefði brunnið en hins vegar hefði engin sprenging orðið. Í ákærunni segir að Ullah hefði ætlað sér að valda eins miklum skaða og hann gæti. Hann mun hafa byrjað að sýna ISIS hollustu árið 2014 og er sagður hafa horft á mikið af myndböndum þeirra á netinu. Meðal þeirra myndbanda var eitt sem fjallaði um að ef stuðningsmenn samtakanna hefðu ekki tök á því að ferðast til Mið-Austurlanda ættu þeir að fremja árásir í heimalöndum sínum.
Tengdar fréttir Sprengingin í New York: Segir að um tilraun til hryðjuverkaárásar hafi verið að ræða 27 ára karlmaður hefur verið handtekinn vegna sprengingar í samgöngumiðstöð á Manhattan í morgun. 11. desember 2017 15:11 Sprengjumaðurinn í New York ákærður fyrir hryðjuverkabrot Maðurinn er sagður alvarlega særður eftir að rörsprengja sem hann var með innan klæða sprakk. 12. desember 2017 14:25 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira
Sprengingin í New York: Segir að um tilraun til hryðjuverkaárásar hafi verið að ræða 27 ára karlmaður hefur verið handtekinn vegna sprengingar í samgöngumiðstöð á Manhattan í morgun. 11. desember 2017 15:11
Sprengjumaðurinn í New York ákærður fyrir hryðjuverkabrot Maðurinn er sagður alvarlega særður eftir að rörsprengja sem hann var með innan klæða sprakk. 12. desember 2017 14:25