Gylfi slapp við að vera á óvinsælum lista Guardian Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2017 19:13 Gylfi Þór Sigurðsson kynntur sem nýr leikmaður Everton á Goodison Park. Vísir/Getty
Guardian nýtir landsleikjahléið til að gera upp fyrsta þriðjunginn á ensku úrvalsdeildinni og í kvöld velta menn þar á bæ fyrir sér hvað séu bestu og verstu kaupin frá því síðastar sumar. Everton borgaði meira en 40 milljónir punda fyrir íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson sem hefur enn ekki náð að skapa mark í fyrstu tíu leikjum sínum fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni. Everton er búið að sitja mikið í fallsæti á tímabilinu og knattspyrnustjórinn Ronald Koeman þurfti að taka pokann sinn. Everton-liðið slapp hinsvegar upp úr fallsæti eftir endurkomusigur um síðustu helgi og Gylfi líka sleppur við að vera á listanum yfir verstu kaup sumarsins. Gylfi kom að 22 mörkum með Swansea í ensku úrvalsdeildinni í fyrra (9 mörk og 13 stoðsendingar) en hann hefur nú spilað 760 mínútur í ensku úrvalsdeildinni með Everton án þess að skora eða gefa stoðsendingu. Á vonbrigðalistanum eru hinsvegar liðsfélagi hans hjá Everton Davy Klaassen, Southampton-maðurinn Jan Bednarek, Manchester City maðurinn Kelechi Iheanacho, Renato Sanches hjá Swansea City og Jairo Riedewald hjá Crystal Palace. Þessir fimm fá þann „heiður“ að vera verstu kaup síðasta sumars hjá liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Í sömu grein tekur Guardian einnig fyrir bestu kaup sumarsins. Þar eru mennirnir Pascal Gross hjá Brighton, Aaron Mooy hjá Huddersfield Town, Mo Sala hjá Liverpool, Kyle Walker hjá Manchester City og Richarlison hjá watford. Það er hægt að lesa nánari útlistun og frekari rökstuðning fyrir valinu á listana tvo með því að smella hér.Bestu kaupin í ensku úrvalsdeildinni í sumar: Pascal Gross (frá Ingolstadt til Brighton, 2,6 milljónir punda) Aaron Mooy (frá Man City til Huddersfield Town, 8 milljónir punda) Mo Salah (frá Roma til Liverpool, 36,9 milljónir punda) Kyle Walker (frá Tottenham Hotspur til Manchester City, 50 milljónir punda) Richarlison (frá Fluminense til Watford, 11 milljónir punda)Verstu kaupin í ensku úrvalsdeildinni í sumar: Jan Bednarek (frá Lech Poznan til Southampton, 5,7 milljónir punda) Davy Klaassen (frá Ajax til Everton, 23,7 milljónir punda) Kelechi Iheanacho (frá Manchester City til Leicester, 25 milljónir punda) Renato Sanches (frá Bayern Munich til Swansea, á láni) Jairo Riedewald (frá Ajax til Crystal Palace, 7,9 milljónir punda)
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira