Alan Shearer: Óttast mikið heilabilun hjá sér í framtíðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2017 07:00 Alan Shearer. Vísir/Getty
Enska knattspyrnugoðsögnin Alan Shearer er aðalmaðurinn í nýrri heimildarmynd BBC þar sem heimildargerðarmenn skoða nánar tengsl á milli höfuðhögga fótboltamanna og heilabilunar á efri árum. Alan Shearer skoraði ófá skallamörkin á farsælum ferli sínum í ensku úrvalsdeildinni en hann er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Telegraph ræddi við Alan Shearer um þessa heimildarmynd en hann er nú orðinn 47 ára gamall og hefur miklar áhyggjur af áhrifum fótboltaferilsins á heilann sinn. Alan Shearer óttast mjög mikið að hann fá dementiu eða vitglöp eins og þessi heilasjúkdómahópur hefur verið kallaður á íslensku. Það er þekkt dæmi að fótboltamenn hafi fengið slíka sjúkdóma á efri árum en þeir Jeff Astle og Nobby Stiles teljast báðir til þess hóps. „Ég hef áhyggjur af því að ég dái dementíu og það er eitthvað sem angrar mig. Ég mun kannski ekki eiga góða framtíð vegna fótboltans,“ sagði Alan Shearer í viðtalinu við blaðamann Telegraph. Hann fór í rannsókn hjá háskólanum í Stirling og í heimildarmyndinni er fylgst með því þegar heili Alan Shearer er skoðaður af fræðimönnum háskólans. Alan Shearer var þekktur fyrir að skalla boltann 150 sinnum á markið á hverri æfingu og þá lenti hann mjög oft í því að fá höfuðhögg eftir skallaeinvígi inn á fótboltavellinum. „Ég varð fyrir höfuðmeiðslum á vellinum en þá hljóp maður bara útaf, það voru saumuð nokkur spor, hausinn var vafinn og svo hljóp maður strax inn á völlinn aftur. Þetta var bara það sem var búist við af manni þá,“ sagði Shearer. „Ég hef samt meiri áhyggjur af áhrifunum frá öllum boltunum sem ég skallaði á æfingunum. Ég hef áhyggjur af því. Ég var kannski að skalla boltann 30, 40, 50 sinnum,“ sagði Shearer. Það má sjá allt viðtalið við hann með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira