Sergio Aguero vikum á undan áætlun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2017 17:37 Sergio Aguero Vísir/Getty
Sergio Aguero, framherji Manchester City, getur ekki hjálpað löndum sínum í argentínska landsliðinu að tryggja sér sæti á HM í Rússlandi í kvöld en hann gæti hjálpað liði City fyrr en áður var talið. Sergio Aguero er farinn að æfa aftur aðeins ellefu dögum eftir að hann meiddist í bílslysi í Amsterdam. Aguero fékk högg á rifbeinin í árekstrinum og það var búist við því að hann yrði frá í nokkrar vikur. Hann er því vikum á undan áætlun í endurhæfingunni. Kappinn mætti kokhraustur á æfingu hjá Manchester City í dag og mun eyða næstum dögum að koma sér aftur í sitt besta form. Sky Sports segir frá.BREAKING: Sergio Aguero returns to light training at Manchester City following car accident in Amsterdam last month #ssnpic.twitter.com/K9VCFeFdY7 — Sky Sports News (@SkySportsNews) October 10, 2017 Aguero vantar nú aðeins eitt mark í viðbót til að jafna markamet Manchester City en Eric Brook skoraði á sínum tíma 177 mörk fyrir félagið. Manchester City er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og mæta Stoke á laugardaginn. Sergio Aguero hefur skorað sex mörk í sex leikjum í ensku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu en liðið vann 1-0 útisigur á Chelsea í fyrsta leiknum eftir bílslysið. Aguero var farþegi í leigubíl á leið út á flugvöll þegar bílinn endaði á staur. Hann var í Amsterdam að horfa á tónleika hjá kólumbísku poppstjörnunni Maluma sem bauð honum sérstaklega til Hollands.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira