Jamie Vardy fékk morðhótanir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2017 09:45 Jamie Vardy. Vísir/Getty
Jamie Vardy, framherji Leicester City, lenti í óskemmtilegri aðstöðu eftir umfjöllun fjölmiðla í kjölfarið á því að ítalski knattspyrnustjórinn Claudio Ranieri var rekinn. Vardy segir að það hafi verið sárt að lesa fréttir fjölmiðla um að hann hafi átt þátt í því að Ranieri var rekinn. Þessar fréttir höfðu einnig mikil áhrif á líf hans því Vardy og fjölskylda hans fengu í kjölfarið morðhótanir. Vardy segir fyrrnefndar fréttir hafi verið úr lausu lofti gripnar og algjörlega ósannar. „Ég las eina frétt um að ég hafi átt að vera á fundi eftir Sevilla-leikinn þegar ég var fastur í þrjá tíma í lyfjaprófi. Þegar fréttin hefur verið birt þá stekkur fólk á þetta og þú ert farin að fá morðhótanir gagnvart þér, fjölskyldunni og börnunum,“ sagði Vardy. Hann segir óskemmtilegt að hugsa til þess að fólk sé farið að hóta því að trufla eiginkonuna við aksturinn þegar hún er með börnin í aftursætinu. Vardy tókst þó að láta þetta ekki trufla sig of mikið. Leicester City rak Claudio Ranieri í febrúar aðeins níu mánuðum eftir að Ítalinn gerði liðið að Englandsmeisturum. Leicester var þá í sautjánda sæti og ekki búið að vinna deildarleik á árinu 2017. Craig Shakespeare tók við liðinu en Leicester City hefur unnið fjóra fyrstu leikina undir hans stjórn og er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. BBC Sport fjallar um ummæli Jamie Vardy en segir jafnframt að heimildir blaðamanna sinna segja að stjórnarformaður Leicester hafi rætt við við leikmennina eftir Sevilla-leikinn og það var neikvæðni frá þeim fundi sem orsökuðu það að Ranieri var rekinn. Það þótti mörgum sárt að sjá Claudio Ranieri fá slík endalok hjá Leicester City en það eru ekki margir að pæla í ítalska stjóranum lengur eftir þessa draumabyrjun undir stjórn Shakespeare.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjá meira