Ofurtölvan spáir því að Liverpool komist í Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2017 15:30 Liverpool menn fagna. Vísir/Getty
Lokaspretturinn er framundan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og aðeins tíu leikir eftir þegar deildin fer aftur af stað eftir landsleikjahlé.Daily Star fékk svokallaða ofurtölvu til að reikna út líklegustu niðurstöðuna í ensku úrvalsdeildinni en tölvan notar til þess allar mögulegar upplýsingar um frammistöðu liðanna tuttugu í vetur. Það þarf svo sem ekki að koma mikið á óvart að tölvan spáir Chelsea öruggum sigri. Chelsea mun samkvæmt henni enda með átta stiga forskot á næstu lið sem verða Tottenham og Manchester City. Tölvan spáir því síðan að Liverpool hafi betur en Arsenal og Manchester United og tryggi sér með því sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Arsenal mun samkvæmt því missa af Meistaradeildarsæti í fyrsta sinn í stjóratíð Arsene Wenger og Manchester United þarf að sætta sig við sjötta sætið sem það þekkir nú alltaf vel eftir síðustu mánuði. Everton og West Brom halda sínum sætum, Southampton kemst upp ío níunda sætið og Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum mun takast að tryggja sér sæti í efri hlutanum með því að ná tíunda sætinu. Englandsmeistarar Leicester City mun komast alla leið upp í þrettánda sæti og verða því í engum vandræðum á lokasprettinum. Crystal Palace mun bjarga sér örugglega en West Ham endaði í fimmtánda sætinu. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City munu síðan bjarga sér naumlega frá falli en það verða Sunderland, Middlesbrough og Hull sem spila í ensku b-deildinni á næsta tímabili samkvæmt spá ofurtölvunnar.
Enski boltinn Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Fleiri fréttir Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Sjá meira